Flakkarar - Félag húsbílaeigenda
Fréttir

 

husbilar.is | 10. maí 2010 - kl. 21:37
Skoðunardagur Flakkara
hjá Frumherja

Skoðunardagur Flakkara er 29. maí 2010 á Akureyri.
En 5. júní 2010 á Sauðárkróki.

ATH. Einungis húsbílar félagsmanna skoðaðir þennan dag.

Skoðunardagur Flakkara verður 29. maí n.k. hjá Frumherja, Frostagötu 3a á Akureyri.
En 5. júní n.k. hjá Frumherja á Sauðárkróki.
Tekið var tilboði Frumherja og ætla þeir að gera þetta að mjög skemmtilegum degi og boðið er upp á nýlagað kaffi og bakkelsi um morguninn og grillaður pylsur og gos um hádegið.  Allir geta látið skoða, endastafur númers skiptir ekki máli. Þeir sem koma í skoðun þurfa að vera búnir að greiða árgjaldið fyrir 2010 og sýna félagsskírteinið sitt
Það verður byrjað að skoða klukkan 9:00 og verið að þangað til það verður búið að skoða alla húsbíla sem koma
Þeir reikna með að verða búnir um klukkan 14:00

Þeir sem hafa ekki möguleika á að nýta sér þetta tilboð geta fengið skoðun á tilboðsverðinu í næstu skoðunarstöð Frumherja. Tilboðið gildir til 1.júlí 2010


Það misritaðist í bréfinu frá Frumherja 5. maí en á að vera 5. júní á Sauðárkróki

Allir geta látið skoða, endastafur númers skiptir ekki máli.
Þeir sem koma í skoðun þurfa að vera búnir að greiða árgjaldið fyrir 2010 og sýna félagsskírteinin
Verð fyrir skoðun er 5200 kr óháð stærð húsbíls
 
Eins og þið sjáið ágætu félagar á þessu tilboði þá vilja Frumherjamenn gera þennan dag skemmtilegan fyrir okkur húsbílafólk og því væri gaman að við fjölmenntum.


 


202

Til baka

© Hinir sömu sf. • Flakkarinn er keyrður á SMALA xL 2
Ef það eru fyrirspurnir varðandi síðuna þá hafið samband við umsjon@husbilar.is