Flakkarar - Félag húsbílaeigenda
Fréttir

 

husbilar.is | 26. júní 2010 - kl. 14:56
Stóra ferðin 2. júlí - 11. júlí 2010
Norðausturland

Þá fer að líða að stóru ferðinni og hér eru helstu upplýsingar um hana:

2. júlí, Grenivík, tjaldstæði og hús kr. 1.000 á bíl.

3. og 4. júlí, Heiðarbær, tjaldstæði kr. 600 á mann. Útilegukortið gildir.

5. júlí, Lundur, tjaldstæði, sundlaug og hús kr. 850 á mann.

6. júlí, Raufarhöfn, tjaldstæði kr. 0  (greitt fyrir rafmagn og sund)

7. og 8. júlí, Þórshöfn, tjaldstæði kr. 500.  Útilegukortið gildir.

9. og 10. júli, Vopnafjörður. Þar verðum við með aðstöðu í barnaskólanum á föstudagskvöld og á laugardagskvöld er lokahófið í Miklagarði. Verð er ekki ákveðið en verður eins hagstætt og hægt er.

Pantanir í síma:  893 2335  Stefán  F 345 og  861 6633 Sigrún  F 215  vigsig@simnet.is

Athugið! þeir sem ekki hafa pantað í síðasta lagi á miðvikudagskvöldið 7. júlí geta ekki verið vissir um að fá miða (mat) á lokahófið.  

 

Á Húsavík verður hægt að fara í hvalaskoðun með Norðursiglingu og erum við búin að semja um 50% afslátt (c.a. 3.900 kr.) fyrir Flakkara í áætlunarferðir þeirra 4. júlí (hafið samband við ferðanefnd áður en þið farið til að fá afsláttinn).

Skemmtinefndin stendur fyrir uppákomum okkur til skemmtunar þar sem við höfum hús. Þemað í ferðinni eru hattar og væri gaman að sem flestir hefðu sína hatta með í ferðina.

Svo leggjumst við öll á bæn um gott veður og munum; maður er manns gaman :)

Ferða og skemmtinefndirnar.


215

Til baka

© Hinir sömu sf. • Flakkarinn er keyrður á SMALA xL 2
Ef það eru fyrirspurnir varðandi síðuna þá hafið samband við umsjon@husbilar.is