 |
|
 |
|
Tjaldstæði sem veita félagsmönnum afslætti, tilboð og/eða eru á góðu verði 2010 |
|



|
|
Ferðaþjónustan Steinsstöðum
Tjaldstæðið er staðsett fyrir neðan Félagsheimilið Árgarð og þar er einnig sundlaug staðarins. Boðið er upp á þjónustu fyrir húsbíla, svo sem rafmagn í húsbíla og losun húsbíla, heitt og kalt vatn og þvottaplan. Tjaldstæðið er rúmgott og á góðum stað með útsýni yfir Mælifellshnjúk. Við hliðina á tjaldstæðinu er þjónustuhús, þar er eldunaraðstaða og aðstaða til að borða inni. Einnig er tjaldstæði austan við gistiheimilið, inni í rjóðri á skjólgóðum stað. http://www.steinsstadir.is
Ártún, Grýtubakkahreppi í Höfðahverfi
Góð aðstaða, og nægt pláss er fyrir tjöld, fellihýsi, húsvagna og húsbíla. Góð hreinlætisaðstaða. Snyrtingar með sturtu, inniaðstaða fyrir fólk til að matast. Rafmagn. Seyrulosun er á staðnum. Möguleiki á þráðlausri internettengingu. Vínveitingar eru í boði í veitingaskálanum í Ártúni. Tjaldstæðin eru vel slétt og þétt. Rýmið er nánast óendanlegt og gefur því þeim sem það vilja, kost á að vera vel útaf fyrir sig. Opnunartími tjaldstæðisins er frá 15. maí - 15. september, eða eftir nánara samkomulagi. www.artun.is
Þórisstaðir Við hjónin á Þórisstöðum viljum bjóða Félagi húsbílaeigenda sérstök kjör á okkar þjónustu: 25% afsláttur af gistingu á tjaldsvæði - 15% afsláttur af veiði - 15% afsláttur af golfi Verðin með afslætti eru þá: 450 á mann á tjaldsvæði, fyrir 13 ára og eldri 1.870 heill dagur veiði - 1.360 hálfur dagur í veiði - 1.275 golfhringurinn - 2.125 daggjald golf Einnig má skoða önnur kjör fyrir hópa. Með bestu kveðju frá Þórisstöðum, Verið velkomin, Elli og Jenny Símar 895-8114 / 848-3733 / 433-8975
Við erum á Facebook - Þórisstaðir - thorisstadir@thorisstadir.is |

|
|
Tjaldstæðið á Hvammstanga - Kirkjuhvammi Tjaldstæðið á Hvammstanga er aðeins 6 km. frá þjóðvegi 1. Einstakt tjaldsvæði í skjólgóðum hvammi(Kirkjuhvammi) með góðu þjónustuhúsi og fullkomri þjónustu fyrir tjald- og húsvagna, rafmagn, seyrulosun. Gjald til félagsmanna gegn framvísun félagsskírteinis: Tjaldstæði kr.500 pr./sólahring, Rafmagn kr. 500 pr/sólarhring - Frítt fyrir börn 15 ára og yngri. Opið: 15. maí til 15. september. - Verið velkomin - Erla og Sveinn, símar: 899 0008 & 615 3779 Erum á Facebook - Kirkjuhvammur, 530 Hvammstangi - hvammur.camping@gmail.com |

|
|
Tjaldstæðið á Flúðum Tjaldmiðstöðin á Flúðum tók í fyrra í notkun nýtt og glæsilegt tjaldsvæði, einkar vel staðsett á fallegum stað við Litlu Laxá. Margfalt stærra og fullkomnara en forverinn og eitt frumlegasta tjaldstæði landsins. Tveir fótboltavellir, flugdrekavöllur og tveir blakvellir, svo eitthvað sé nefnt. Fyrri húsbíla er búið að gera sérstök stæði í brekkunum, með góðu útsýni yfir næsta nágrenni. Stæðin eru á þéttum uppgæddum mel. Vatn og rafmagn er á stæðunum. Verð: 1000 kr. á mann nóttin fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 13-16 ára og frítt fyrir 12 ára og yngri. Rafmagn: 500 kr á dag - Verið velkomin! http://www.fludir.is/ - [ Skoða kynningarskjal um tjaldstæðið ]
|

|
|
Tjaldstæði í Garðinum er út við Garðskagavita. Tjaldstæðið er frítt og á það einnig við um rafmagnið. Garðurinn er frábær staður til að njóta útivistar hvort sem um er að ræða gönguferðir, berjatýnslu í móunum, golf, sund eða nestisferð í skrúðgarðinn. Skrúðgarðurinn Bræðraborg við Garðbraut er fallegur og litríkur og sannkallaður ævintýrastaður fyrir börn þar sem felustaðir og fjársjóðir leynast í hverju horni. Garðskagi er sannkölluð náttúruperla en þar er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Útsýnið frá Garðskaga er einstakt og fuglalífið sérstaklega fjölbreytt. http://www.svgardur.is/ |
 |
|
Tjaldstæðið að Kverná Í tilefni þess að í júní í sumar verða 30 ár liðin frá því að við hófum starfsemi við ferðaþjónustu að Kverná í Grundarfirði, bjóðum við öllum 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Húsbílafélaginu, frían aðgang á Tjaldsvæðinu Kverná. Gjaldtaka verður af allri rafmagnsnotkun. Tilboðið gildir frá 10. júni til 1. sept 2010.
Vinsamlega hafið samband við undirritaðan: Fh. Tjaldsvæðisins Kverná, Kristinn Jóhannsson, símar: 865 4514 og 438 6813 - kverna@simnet.is
|
|
|
|
 |
|
Tjalda.is http://www.tjalda.is/ - Vandaður upplýsingavefur um hin ýmsu tjaldstæði og fréttir þeim tengdar | |
|
 |
|