




Vetrarkaffi Flakkar 2004
Í kaffið mættu 62 félagsmenn og var Gamli Lundur nánast fullsetinn. Þarna svignuðu borð undan kræsingum sem þeir Bautamenn framreiddu.
Sveinn Heiðar formaður hélt smá tölu, hann skýrði félagsmönnum frá því að náðst hefðu samningar fyrir félagsmenn í Flökkurum um fargjald með Norrænu í sumar. Þá sagði hann frá því að stjórnendur Smyril line og fleiri aðila í ferðamennsku á Íslandi hafi hugsað sér að halda námskeið fyrir þá sem hyggja á að ferðast á sínum bílum á eigin vegum til Evrópu. Fyrirhugað er að hald tvö námskeið í Reykjavík, eitt á Egilstöðum og eitt á Akureyri nú einhvertíman á vordögum en það verður auðvitað auglýst nánar þegar að því kemur.
Að lokum færði formaður Bjarna Sigurjónssyni þakkir fyrir vel unnin störf á síðustu árum sem utanfararfulltrúi Flakkara og klöppuðu félagarnir vel fyrir Bjarna.
Þá fór formaður ferðanefndar yfir ferðaáætlun sumarsins og var gerður góður rómur að því frábæra ferðaplani sem þar er ákveðið og eflaust margan farið að hlakka til komandi sumars.
Kaffisamsætið stóð í tæpa tvo tíma.
Myndir frá vetrarkaffinu
Nóvember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
Fyrri | Núna | Næsti |