




Veiðiferðin 2004
Hér koma myndir frá Flakkara 194 og pistill frá Ferðanefndinni úr
veiðiferðinni sem var farin að Svínavatni 13-15 ágúst 2004.
Seinnipart föstudags fór fólk að koma að félagsheimilinu Dalsmynni sem stendur sunnan við Svínavatn
en þar átti að veiða. Um kvöldið var farið að huga að veiðarfærum, og leggja, aflinn tregur um kvöldið
en á laugardag veiddist nokkuð eða samtals einhvað á annað hundrað fiskar sem skipt var niður á sunnudag
til þeirra félaga sem vildu fá í soðið.
Á föstudagskvöld var sungið og dansað í félagsheimilinu við undirleik af geisladiskum úr misgóðum hljómflutningstækjum.
Á laugardagskvöld var farið inn í félagsheimili og byrjað að dansa við undirleik þeirra Elínar og Þóris til miðnættis,
en þá tóku Valberg,Steinun og Ingvar við og spiluðu fram eftir nóttu.
31 bíll voru mættir á föstudagskvöldið á laugardag bættust nokkrir við og voru 36 bílar þegar mest var.
Sjötíu og fimm manns skrifuðu sig í gestabók hússins.
Ég held að allir hafi skemmt sér mjög vel í þessari ferð enda blíðskapar veður allan tímann.
Með Flakkara kveðju og takk fyrir góða helgi.
Nóvember 2023 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
Fyrri | Núna | Næsti |